Vín & matur

Vínpósturinn, 3. maí 2007

Fyrstu vínin frá Búrgúnd
Lovísa heldur áfram með Vínkeðjuna
Tappagjald — taktu þitt eigið vín á veitingastaðinn
Fróðleikur um Búrgúnd

Fyrstu vínin frá Búrgúnd

Það hefur staðið lengi til að flytja inn vín frá Búrgúndarhéraði Frakklands. Rótin að því liggur jafnvel enn dýpra því brúðkaupsferð okkar Rakelar fyrir 11 árum síðan lá m.a. um héraðið með tilheyrandi vínsmökkunum.

Búrgúnd er ekki auðvelt vínhérað. Svæðin skiptast niður í smáar einingar sem deilast síðan á enn fleiri framleiðendur. Það er nánast ómögulegt að bera nöfn vínanna fram og miðarnir virðast líta allir eins út.

En það er ekki erfitt að njóta vínanna þegar maður er á annað borð kominn á bragðið.

Hér ráða tvær þrúgur ríkjum, Pinot Noir í rauðvínum og Chardonnay í hvítvínum. Lestu um Pinot Noir og Chardonnay á Wikipedia.

Mounir, eigandi Lucien Le Moine, framleiðir fjölmörg vín, aðallega rauð, frá ótal smáum skikum — blettum væri réttara að segja — þannig að af mörgum vínanna verða aðeins til um 300 flöskur. Mounir á engan þessara skika sjálfur heldur kaupir þrúgurnar af vel völdum framleiðendum. Lestu hvað pressan segir um Lucien Le Moine og hvaða dóma vínin hans fá.

Domaine Jean Grivot er rekið af syni Jean Grivot, Etienne Grivot og eiginkonu hans Marielle. Þau eiga vínekrurnar sjálf, um 15 hektara, og rækta þar allar sínar þrúgur. Þéttleiki plantanna er 11.000 plöntur per hektara en uppskeran afar lítil til að hámarka gæðin. Lestu hvaða dóma vínin frá Grivot fá.

Vínin eru öll af 2004 árgangi. Þau koma til landsins í lok maí. Öll vínin eru rauðvín (nema annað sé tekið fram):

Hversu mikið eigum við af þessum vínum?

Einungis 3 til 9 flöskur af hverri sort (utan Grivot "Les Charmois" sem telur um 36 flöskur).

Lucien Le Moine
Saint Aubine En Remilly 1er CRU — 5.200 kr. [hvítvín]
Pernand Vergelesses Sous Fretille 1er CRU — 5.200 kr. [hvítvín]
Pommard “Rugiens” 1er CRU — 6.100 kr.
Pommard "Les Epenots" 1er CRU — 6.200 kr.
Nuits St. Georges “Les Vaucrains” 1er CRU — 6.200 kr.
Gevrey-Chambertin “Cazetiers” 1er CRU — 6.100 kr.
Chambolle-Musigny "Les Charmes" 1er CRU — 6.400 kr.
Chambolle-Musigny "Les Amoreuses" 1er CRU — 9.000 kr.
Corton “Bressandes” 1er CRU — 6.900 kr.
Clos de Vougeot GRAND CRU — 10.500 kr.
Mazis Chambertin GRAND CRU — 10.800 kr.
.

Domain Jean Grivot
Vosne-Romanée "Les Bossières" — 4.800 kr.
Vosne-Romanée "Les Rouges" 1er CRU — 5.200 kr.
Nuits-Saint-Georges "Les Charmois" — 4.200 kr.
Nuits-Saint-Georges "Les Roncières" 1er CRU — 6.700
Clos de Vougeot GRAND CRU — 8.500 kr.


Sendu okkur tölvupóst á vinogmatur@internet.is til að láta taka frá þessi vín eða svaraðum þessum tölvupósti.

Áttu vin sem elskar góð frönsk vín?
Smelltu þá hér til áframsenda honum þennan póst

Vínkeðjan heldur loksins áfram

Lovísa bloggar um ástralska rauðvínið The Footbolt og finnst það bara ansi gott.

The Footbolt fæst í stærstu Vínbúðunum og kostar 1.790 kr.

Þitt eigið vín á veitingastaðinn

Lestu bloggið um tappagjald á veitingastöðum og hvernig þú gætir hugsanlega mótmælt lélegum vínlista með því að fá að taka með þér þitt eigið vín á staðinn.

Ekki verra ef það væri frá okkur.

Fróðleikur um Búrgúnd

Fróðleik um vínin frá Búrgúnd má nálgast m.a. á Burgundy Wines, hjá Víndoktornum, Wine Pages og Wikipedia.

Kort af vínlendum í Búrgúnd er hægt að finna hjá Berry Brothers.

Ferðaupplýsingar um Búrgúndarhérðið er að finna hér.

Góðar bækur um Búrgúndarvínin á Amazon eru m.a. Wines of Burgundy, Cote D'Or: A Celebration of the Great Wines of Burgundy og Burgundy.

Njótið heil,
Arnar


http://www.vinogmatur.is/


Vín & matur er lítið fjölskyldufyrirtæki sem rekið er af Arnari og Rakel og flytur bara inn sérstaklega góð vín og svolítið af mat. Við viljum gjarnan heyra hvað þér finnst um þennan póst, vínin sem við flytjum inn eða bara hvað sem er. Sendu okkur póst á vinogmatur@internet.is eða hringdu í okkur í síma 693 7165.

 

Er þetta orðið gott? Það er einfalt að segja upp áskriftinni að Vínpóstinum.